23.6.2009 | 23:02
Sjáum rétt
Það er góð gáfa
að geta séð sjálfan sig
með augum hinna.
Gunnar Dal
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2009 | 23:05
Lifa
Listin að lifa,
að búa til regnboga
úr ekki neinu.
Gunnar Dal
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2009 | 10:39
Vorið
Gleðilegt sumar og takk fyrir skjástundir í vetur.
Hér er uppáhalds vorljóðið mitt
í friði og spekt
og geri ekki neitt.
Vorið er komið
og grasið grær af sjálfum sér.
Zenrin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2009 | 19:00
Lífið...
Hið órannsakaða líf er einskis virði.
- Sókrates
Tilgangur lífsins er ekki þekking, heldur framkvæmd.
- Aldous Huxley
Ekki taka lífinu of alvarlega.
Enginn sleppur lifandi hvort sem er.
Allir vilja lifa lengi en enginn vill verða gamall.
- Jonathan Swift
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2009 | 19:55
Vinátta
Vináttuvísur
Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna,
vita ekki að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
höf: Hjálmar Freysteinsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2009 | 20:45
Markmið
Þýðingarmikið er að hafa markmið í lífinu og stefna stöðugt að því.
Sjáðu raunverulegan tilgang og áætlun í lífi þínu þó þú sért ekki alltaf fær um að sjá markmiðið skýrt; því þegar þú ferð niður í dal eða leiðin er hlykkjótt, getur þú ekki alltaf séð fyrir næsta horn. Þú munt finna af og til að þér er gefin hvetjandi andleg upplifun sem fleytir þér áfram í gegnum erfiðleikana. Það gerir þér fært að halda áfram, skiptir engu máli hvað það er sem þú ert að horfast í augu við.
Stefndu hátt því hærra því betra.
Haltu áfram að vaxa og þroskast til að komast þangað. Þú getur ekki haldið að þér höndum og verið ánægður með þig; þú getur ekki haldist á sama stað. Þú þarft alltaf að teygja þig yfir á næsta þrep í stiga lífsins. Þú veist að sérhvert skref færir þig nær markmiðinu, skitpir ekki máli hvað það virðist vera langt í burtu. Haldu því stöðugt áfram og gefstu ekki upp.
Eileen Caddy úr bókinni Ég er innra með þér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 18:24
Gunnar Dal
Líf þitt er orðið
eintómir ferhyrningar
eins og skákborðið.
Kyrrstæðir punktar,
tilvera sett í skorður
skilgreininganna.
Hann sýnist rauður.
Hann drekkur í sig allt ljós,
nema hið rauða.
Eðli sannleikans
í veröld sem sífellt breytist?
Óskilgreinanlegt.
Við komum hingað
og það sem skipti máli
bíður okkar hér.
Himinninn svartur.
Hið hvíta skínandi ljós:
Græn jörð, blár himinn.
Mér finnst það mjög gott
að skoða sumt í nálægð,
annað úr fjarlægð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2009 | 10:16
Fegurð
Þessi fegurð þín.
Gjöful eins og sólskinið,
tær eins og döggin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 22:27
Vinur
Að eiga vin
er að standa ekki einn
þegar eitthvað bjátar á.
Að eiga vin
er líka gleði á góðri stund
gæfa í hversdagsleikanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 12:54
Með bæninni kemur ljósið
Með bæninni kemur ljósið
Páll Óskar / Brynhildur Björnsdóttir
Þegar næðir í mínu hjarta og í huga mér engin ró
og ég þrái að sjá hið bjarta sem að áður í mér bjó
þá er lausnin alltaf nálæg, ef um hana í auðmýkt bið
og með bæninni kemur ljósið og í ljósinu finn ég frið.
Ó,svo dapur er dagur vaknar,dægurþrasið svo fjarri er.
Mundu þegar þú sárast saknar og sólin skín hvergi nærri þér
að í bæn er falinn máttur er þig magnar þúsundfalt
því með bæninni kemur ljósið og í ljósinu lagast allt.
Ég vil mæta þessum degi,fagna öllu sem fyrir ber
og ég bið þess að ég megi njóta alls sem hann gefur mér.
Ef ég bið á hverjum degi, hef ég von sem aldrei deyr
því með bæninni kemur ljósið og í myrkri ég geng ei meir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)